Quantcast
Channel: Ævintýraspil – Nordic Games
Viewing all articles
Browse latest Browse all 47

Draugastiginn – ferðaútgáfa

$
0
0

Ferðaútgáfa af margverðlaunuðu borðspili fyrir hressa krakka!

Þægilegt álbox og minna leikborð.

Gömul vofa býr í efsta skotinu í gömlum rústum. Nokkrir hugrakkir krakkar læðast hljóðlega upp drungalegan stiga sem liggur að skotinu. Þau vilja öll vera fyrst til að hræða gömlu vofuna með því að segja: BÖÖÖ! En gamla vofan þekkir þennan aldagamla leik og án þess að krakkana gruni hefur hún lagt álög á teninginn þannig að þau breytast í drauga, hvert á eftir öðru.

Þegar leikmaður kastar teningnum og draugur kemur upp á sá leikmaður að breyta einhverju peði í draug með því að setja einn af draugunum, sem eru geymd við hliðina á leikborðinu, ofan á eitthvert peð annað hvort sitt eigið eða eitt af peðum annara leikmanna. Segulhatturinn smellur þá innan í draugnum og peðið hverfur! Leikmenn þurfa að muna undir hvaða draugi peðið þeirra er.

Þegar öllum peðum hefur verið breytt í drauga og draugur kemur upp á teningnum er tveimur draugum víxlað á leikborðinu!

Sá leikmaður sem fyrstur nær upp til gömlu vofunnar og tekst að muna hver hanN er, þrátt fyrir allan ruglinginn, stendur uppi sem sigurvegari!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 47